Glæsilegt einbýlishús með fjórum svefnherbergjum og einkasundlaug í Los Balcones
Bjart og fallega innréttað 175 m² einbýlishús með einkasundlaug, rúmgóðum útisvæðum og stórum einkabílskúr í hinu eftirsótta íbúðahverfi Los Balcones í Torrevieja.
Stofan einkennist af mikilli lofthæð og stórum gólfsíðum gluggum sem veita ríkulega náttúrulega birtu og tengja alrýmið við garðinn. Stofa, borðstofa og opið eldhús mynda aðlaðandi og samfellda heild, tilvalda bæði fyrir daglegt líf og samveru með fjölskyldu og vinum.
Í húsinu eru fjögur svefnherbergi og þrjú baðherbergi. Innréttingarnar gefa hverju rými sinn karakter og fataherbergi býður upp á gott geymslupláss. Baðherbergin eru björt og nútímaleg, með sturtuaðstöðu og fallegum innréttingum.
Útisvæðin bjóða upp á fjölbreytta möguleika til að njóta veðurblíðunnar. Við einkasundlaugina er pláss fyrir sólbekki og afslöppun, ásamt grasflöt og útieldhúsi. Rúmgóðar verandir og svalir með setu- og borðaðstöðu skapa notalega umgjörð um máltíðir undir berum himni og rólegar stundir í sólinni.
Á neðri hæð er auk þess sjónvarps- og seturými, ásamt stórum einkabílskúr/kjallara með góðu geymsluplássi.
Los Balcones er gróið íbúðahverfi með þægilegu aðgengi að verslunum, veitingastöðum, kaffihúsum, skólum og sjúkrahúsi Torrevieja. Saltlónin, strendur og golfvellir eru í stuttri akstursfjarlægð. Alicante-flugvöllur er í um 50 mínútna akstursfjarlægð.
Falleg eign fyrir þá sem leita að rúmgóðu heimili með einkasundlaug og góðri aðstöðu til að njóta lífsins á Costa Blanca.
Verð 630.000€ + 12% kostnaður. Þar af 9% VSK og allt að 3% í stimpil- og skráningargjöld.