Endurnýjuð íbúð, á fjórðu hæð ofan jarðhæðar, í lyftuhúsi í miðbæ Bigastro.
Íbúðin er um 80 m² og í henni eru tvö svefnherbergi, baðherbergi, stofa og borðstofa í einu rými og sérstakt eldhús.
Íbúðinni fylgir einnig um 6 m² sérgeymsla á þakverönd hússins.
Bigastro er um 7.500 manna bær í Vega Baja-héraði, um5 km frá borginni Orihuela og um 20 km frá ströndinni.
Í bænum er öll nauðsynleg þjónusta. Þar sem stofnbraut liggur fram hjá bænum er hann friðsæll.
Verð: 110.000 € + 12% kostnaður, þar af 9% virðisaukaskattur og allt að 3% í lögbókanda- og þinglýsingargjöld.
Eigandi