Fallegt endahús á einni hæð sem snýr í vestur, í Playa Flamenca á Orihuela Costa.
Í húsinu eru tvö svefnherbergi, baðherbergi, stofa og borðstofa í einu rými, sérstakt eldhús, þvottahús og geymsla.
Forskálanum við innganginn hefur verið breytt í notalegt setusvæði.
Á þaksvölunum hefur verið byggt 20 m² herbergi með opinni verönd, með aðgengi utan frá.
Húsið selst með húsgögnum, heimilistækjum og loftkælingu, og í svefnherbergjunum eru loftviftur með ljósum.
Á lóðinni er sjálfvirkt hlið og innan þess skyggt bílastæði fyrir tvo bíla.
Eigninni fylgir einnig sameiginleg sundlaug.
Stutt er á strendur Orihuela Costa og í verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard, apótek og aðra helstu þjónustu.
Verð: 233.000 € + 12% kostnaður, þar af 9% virðisaukaskattur og allt að 3% í lögbókanda- og þinglýsingargjöld.
Eigandi